ATH!!! ATH!!! ATH!!! ATH!!!
Byrjendur 1- (Fyrir byrjendur, þær sem aldrei hafa æft PoleFitness áður)
Byrjandi 2 - (Fyrir þær sem hafa farið á byrjendanámskeið nr. 1)
Byrjandi 3 - (Í þessu námskeiði verða kennd síðustu grunnatriðin, til þess að geta gert mun erfiðari æfingar í næsta námskeiði)
Byrjendur 1-2-3 - Það tekur samtals 3 mánuði að læra grunnatriði PoleFitness, eftir að hafa klárað þessi þrjú námskeið ertu tilbúin til að fara áfram í framhaldsnámskeið.
Framhald 1 - (Eftir að hafa lokið við Byrjendur 1, 2, og 3 er komið að framhaldi 1)
Framhald 2 - (Er næsta námskeið eftir að hafa lokið Framhaldi 1)
Pole Xtream - (Stelpur sem hafa æft í að minnsta kosti 5 mánuði eru tilbúnar í næsta framhaldsstig, Pole Xtream. Í þessu námskeiði verða gerðar erfiðar æfingar sem henta einungis þeim sem eru í mjög góðu standi. Á þessu stigi ertu orðin fær að kenna Byrjendum 1 og 2)
Pole SuperXtream - (Þetta er síðasta stig okkar, eftir að hafa klárað þetta stig færðu vottorð, og ert í kjölfarið hæf til að kenna PoleFitness á öllum stigum, hvort sem það eru byrjendanámskeið eða framhaldsnámskeið)